Hleð síðu...

Námskeið

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval námskeiða sem byggja á gagnreyndum meðferðaraðferðum sálfræðinnar.

Mótaðu leið þína (í átt að...)

Hagnýtt og uppbyggjandi námskeið sem styður markvisst við endurkomu á vinnumarkað, í nám eða virka þátttöku í endurhæfingu. Unnið er með ACT og Atomic Habits aðferðafræði til að búa til varanlegar venjur og finna réttu áttina í lífinu.

Leiðbeinandi: Karl Jónas Smárason, sálfræðingur.

Sjá nánar

Sjálfstraustsgildran: Innra trúarkerfið

Unnið er í átt að auknu og hjálplegu sjálfstrausti með því að skoða neikvætt sjálfstal og ótta við mistök eða höfnun. Námskeiðið hjálpar þér að rjúfa vítahringinn með aðferðum samkenndar og ACT.

Leiðbeinandi: Karl Jónas Smárason, sálfræðingur.

Sjá nánar

Bætt sjálfsmat: Bætt líðan

Námskeið fyrir þá sem upplifa háværa innri sjálfsgagnrýni eða mæla eigið virði út frá frammistöðu. Byggt á HAM og samkenndarmiðaðri meðferð (CFT) til að byggja upp heilbrigðara og stöðugra sjálfsmat.

Leiðbeinandi: Karl Jónas Smárason, sálfræðingur.

Sjá nánar

Bætt líðan: Hugsun, hegðun og sjálfsmildi

Grunnnámskeið sem hentar vel fólki með kvíða-, streitu- og þunglyndiseinkenni. Unnið er með grunnatriði hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) og samkenndarmiðaða nálgun til að takast á við skömm og sjálfsgagnrýni.

Leiðbeinendur: Margrét Ingvarsdóttir og Unnur Vala Guðbjartsdóttir, sálfræðingar.

Sjá nánar

Betra jafnvægi: Bjargráð fyrir taugakerfið

Námskeið fyrir þá sem upplifa streitu, örmögnun eða eru með áfallasögu. Markmiðið er að skilja hlutverk taugakerfisins og öðlast bjargráð í gegnum fræðslu, öndun og yin jóga.

Leiðbeinandi: Unnur Vala Guðbjartsdóttir, sálfræðingur og yin jóga kennari.

Sjá nánar