Hleð síðu...
Vala Thorsteinsson, sálfræðingur

Vala sinnir meðferð barna og ungs fólks. Hún sérhæfir sig í vinnu með áfallastreituröskun og sorg auk þess að sinna meðferð kvíðaraskana, þunglyndis og lágs sjálfsmats.

Vala nýtir mest hugræna atferlismeðferð og EMDR meðferð en einnig áfallamiðaða hugræna atferlismeðferð (Trauma-focused CBT).

Vala starfaði áður á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni, var þar teymisstjóri áfallateymis, og þar áður sálfræðingur í geðteymi barna á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún hefur verið í áfallateymi Rauða Kross Íslands og unnið mikið með börnum sem misst hafa foreldri/-a í samstarfi við Ljónshjarta.

Vala situr í stjórn EMDR Ísland og í fræðslunefnd Félags sjálfstætt starfandi sálfræðinga. Hún er ennfremur meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands.

Menntun
Vala útskrifaðist með BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu (MSc) í klínískri sálfræði frá Universiteit van Amsterdam. Hún hlaut starfsréttindi árið 2012. Hún var í starfsnámi á göngudeild geðdeildar Landspítalans við Hringbraut.
Hún hefur lokið þjálfun í EMDR áfallameðferð Level 1 og 2 og EMDR fyrir börn og unglinga. Einnig hefur hún lokið þjálfun í áfallamiðaðri hugrænni atferlismeðferð.
Hún hefur sótt fjölda vinnustofa, m.a. vinnustofu í handleiðslu hjá Dr. Helen Kennerly í Háskólanum í Oxford, um flókin áföll og hugrof hjá Kathleen Martin, samkenndarmiðaða áfallameðferð hjá Deborah Lee, og DAM meðferð unglinga hjá Jill Rathus og Alec Miller.

Sendu Völu skilaboð.