Árný sinnir greiningu og meðferð fullorðinna (18 ára og eldri). Hún sinnir helst meðferð við sjálfsmatsvanda og kvíðaröskunum þ.á.m. félagskvíða, áhyggjuvanda, ofsakvíða, heilsukvíða og almennum kvíða. Hún vinnur einnig með skjólstæðingum í að takast á við depurð, þunglyndi, streitu og almenna vanlíðan. Árný nýtir hugræna atferlismeðferð í vinnu sinni með skjólstæðingum og leggur mikið upp úr samkennd, hlýju viðmóti og að mæta viðkomandi þar sem hann er staddur hverju sinni.
Menntun og klínísk reynslaÁrný útskrifaðist með B.S. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og með M.S. gráðu í klínískri sálfræði frá sama skóla árið 2022. Á meðan á náminu stóð öðlaðist hún reynslu við að sinna greiningu og meðferð við sálfræðiráðgjöf háskólanema auk þess sem hún var í starfsnámi hjá Kvíðameðferðarstöðinni og hóf þar í framhaldinu störf eftir útskrift og starfaði í tvö ár.
Árný sækir reglulega handleiðslu til reyndari sálfræðinga til að tryggja faglega nálgun og meðferð fyrir skjólstæðinga sína.
Fyrri reynslaMeðfram námi starfaði Árný við umönnun og stuðning í Reykjadal, sumardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni og börn með ADHD, einhverfu og/eða andlegar áskoranir auk þess sem hún starfaði sem aðstoðarmaður við rannsókn á næringu og svefni nýbura á Landspítalanum. Hún hefur einnig reynslu við störf sem stuðningsfulltrúi og atferlisþjálfi í grunnskóla.
Sendu Árnýju skilaboð.